Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 11. september 2018 11:00
Egill Sigfússon
Óttar Magnús: Liðið lítur vel út og við erum fullir tilhlökkunar
Óttar skoraði tvö mörk gegn Eistlandi
Óttar skoraði tvö mörk gegn Eistlandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland tekur á móti Slóvakíu í undankeppni fyrir U-21 Evrópumótið í dag klukkan 15:30 á Alvogen-vellinum. Óttar Magnús Karlsson leikmaður liðsins segir að eftir frábæran sigur gegn Eistlandi þá þarf að byggja ofan á það og spila svipaðan leik og gegn þeim.


„Við erum búnir að vera æfa vel og þetta var flottur leikur á fimmtudaginn þannig að liðið lítur bara vel út og við erum fullir tilhlökkunar. Í grunninn munum við spila okkar leik eins og við höfum verið að gera, við munum byggja aðallega á því."

Aðspurður hvort þeir þurfi að vinna þá leiki sem eftir eru sagði Óttar að það væri nokkuð ljóst að þeir þurfi að gera það til að eiga möguleika á að komast í umspilið.

„Já ég held að það sé alveg nokkuð ljóst að við þurfum eins mörg stig og við mögulega getum fengið, þannig að það er eina vitið að reyna vinna það sem eftir er."

Óttar er samningsbundinn Molde í Noregi en er nú á láni hjá Trelleborgs FF í Sænsku Úrvalsdeildinni. Óttar segist ánægður þar eins og er en veit ekki hvort hann verði áfram eða fari aftur og spili fyrir Molde.

„Ég er bara mjög ánægður, mér líður vel eins og er og það er það eina sem skiptir máli í þessu. Það á eftir að koma í ljós hvort ég verði áfram hér eða fari aftur til Molde en ég er ekkert að hugsa um það eins og er. Ég er bara að hugsa um þetta verkefni núna og svo kemur það bara í ljós, það skýrist."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner