Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. september 2021 10:30
Victor Pálsson
Dani Alves hættur hjá Sao Paulo - Neitaði að æfa og spila
Mynd: Sara Björk Gunnarsdóttir - Instagram
Bakvörðurinn Dani Alves hefur yfirgefið lið Sao Paulo í Brasilíu þar sem hann lék síðustu tvö ár.

Þetta staðfesti Sao Paulo í gær en Alves er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Barcelona á Spáni.

Hann segist eiga inni laun hjá brasilíska félaginu en upphæðin hljómar upp á 1,3 milljónir punda.

Alves hefur ekki fengið þessi laun greidd og neitaði þess vegna að spila fyrir félagið. Þetta mál hefur gengið yfir í dágóðan tíma.

Alves neitaði einnig að snúa aftur til æfinga með Brasilíu eftir landsleikjahléð og nú er hann laus allra mála.

Sao Paulo segist hafa borgað þessi laun en viðurkenndi á sama tíma að þau hafi komið seinna en áætlað var.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner