Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 11. september 2021 15:01
Victor Pálsson
Einar Guðna hættir hjá Víkingum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Guðnason mun láta af störfum hjá Víkingi Reykjavík í lok mánaðar en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Hann hefur starfað í þjálfarateymi liðsins.

Einar hefur lengi verið á mála hjá Víkingum en hann var leikmaður í meistaraflokki og hefur einnig séð um þjálfun hjá félaginu.

Í tilkynningu Víkinga kemur fram að Einar sé að flytja til Svíþjóðar með fjölskyldunni og mun dvelja þar næstu ár.

Tilkynning Víkings:

Í lok september lætur Einar Guðnason af störfum hjá knattspyrnudeild Víkings. Einar og fjölskylda hans halda í víking til Svíþjóðar þar sem þau munu dvelja næstu árin.

Einar hefur sinnt flestum hlutverkum hjá Víking síðustu þrjá áratugina. Hann spilaði upp alla yngri flokkana, var leikmaður í meistaraflokki, þjálfari yngri flokka og síðustu árin sem yfirþjálfari barna- og unglingaráðs og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.

Það er ljóst að það er mikil missir af Einari fyrir knattspyrnudeildina og félagið allt, enda er fórnfýsi og ástríða Einars fyrir félaginu einstök. Það má með sanni segja að Einar hefur lagt sitt í að efla félagsvitund yngstu árganganna með samstarfi við leikskóla hverfisins sem skilar sér í Víkingum til framtíðar.

Við óskum Einari góðrar ferðar og góðs gengis í nýju ævintýri en á sama tíma hlökkum til að fá þennan sanna Víking aftur heim.

Takk Einar!
Athugasemdir
banner
banner