Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. september 2021 13:24
Victor Pálsson
England: Tottenham fékk skell gegn Palace - Edouard með tvennu
Zaha var frábær í dag.
Zaha var frábær í dag.
Mynd: Getty Images
Sá rautt.
Sá rautt.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 3 - 0 Tottenham
1-0 Wilfred Zaha ('75 , víti)
2-0 Odsonne Edouard ('84 )
3-0 Odsonne Edouard('94)

Rautt spjald: Japhet Tanganga, Tottenham ('58)

Tottenham tapaði sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu í dag er liðið mætti Crystal Palace á Selhurst Park.

Wilfried Zaha og Odsonne Edouard áttu frábæran leik fyrir Palace sem vann að lokum 3-0 heimasigur.

Allt fór úrskeiðis hjá Tottenham á 58. mínútu er Japhet Tanganga fékk rautt spjald eða sitt annað gula spjald á fimm mínútum.

Fyrir það hafði liðið misst Eric Dier af velli á 12. mínútu en hann meiddist. Joe Rodon kom inná í hans stað.

Palace tókst að nýta sér liðsmuninn þegar korter var eftir en Zaha skoraði þá fyrra mark liðsins úr vítaspyrnu.

Nýi maðurinn Odsonne Edouard skoraði svo annað mark Palace á 84. mínútu en hann var nýkominn inná sem varamaður. Zaha lagði upp þetta mark á Edouard.

Edouard samdi við Palace á lokadegi gluggans í sumar og var ekki lengi að stimpla sig inn.

Edouard bætti svo við sínu öðru marki í blálokin og innsiglaði sannfærandi 3-0 heimasigur Palace.

Tottenham hafði fyrir leikinn unnið alla þrjá deildarleiki sína og var Palace að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner