Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. september 2021 22:50
Brynjar Ingi Erluson
Glódís Perla skoraði í sigri Bayern München
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir skoraði þriðja mark Bayern München í 4-0 sigri á Freiburg í þýsku deildinni í dag.

Glódís kom til Bayern frá sænska liðinu Rosengård fyrir tímabilið en þetta var fyrsta markið sem hún skorar í þýsku deildinni.

Hún gerði þriðja mark liðsins á 66. mínútu og var þetta fyrsta mark hennar fyrir liðið.

Glódís lék allan leikinn í dag en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sat allan tímann á varamannabekknum.

Alexandra Jóhannsdóttir kom inná sem varamaður á 69. mínútu í 4-0 sigri Eintracht Frankfurt á Köln.

Bayern er á toppnum eftir fyrstu þrjá leikina með fullt hús stiga með markatöluna 15:0. Frankfurt er í öðru sæti með jafnmörg stig.
Athugasemdir
banner