Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. september 2021 08:00
Victor Pálsson
Hazard nálægt sínu besta formi
Mynd: Getty Images
Eden Hazard er að nálgast sitt besta form að sögn landsliðsþjálfara Belga, Roberto Martinez, sem hefur unnið með leikmanninum í landsleikjahléi síðustu vikur.

Hazard er á mála hjá Real Madrid en hefur ekki náð að sýna sitt besta og hafa meiðsli sett stórt strik í reikninginn þar.

Hazard yfirgaf Chelsea fyrir Real árið 2019 en spilaði virkilega vel gegn Tékkum í landsleikjahléinu sem er nú lokið.

„Eden er tilbúinn að láta til sín taka að alvöru næstu vikur og mánuði," sagði Martinez við Sportstar.

„Gegn Tékklandi þá bætti hann alla fyrri tölfræði - þetta var besti Eden sem ég hef séð síðan í nóvember árið 2019."

„Sú staðreynd að hann hafi viljað koma hingað og ferðast svo langt, vitandi það að hann gæti ekki spilað 90 mínútur sýnir hans hugarfar."

„Hann vildi einnig vera okkar fyrirliði og leiðtogi gegn Hvíta-Rússlandi."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner