Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 11. september 2021 22:41
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Öll mörkin úr vítum er Fiorentina vann Atalanta
Dusan Vlahovic var öruggur á punktinum
Dusan Vlahovic var öruggur á punktinum
Mynd: EPA
Atalanta 1 - 2 Fiorentina
0-1 Dusan Vlahovic ('33 , víti)
0-2 Dusan Vlahovic ('49 , víti)
1-2 Duvan Zapata ('65 , víti)

Öll þrjú mörkin úr leik Atalanta og Fiorentina komu úr vítum en Flórensarliðið bar sigur úr býtum, 2-1, í Seríu A á Ítalíu í dag.

Fiorentina fékk fyrstu vítaspyrnuna á 32. mínútu þegar Joakim Mæhle handlék knöttinn innan teigs. Dusan Vlahovic steig á punktinn og skoraði.

Hann var aftur á ferðinni á 49. mínútu. Berat Djimsiti braut af sér innan teigs og var það aftur í verkahring Vlahovic að taka vítið, sem var ekkert vandamál fyrir hann.

Atalanta fékk síðan vítaspyrnu á 64. mínútu. Jose Callejon braut á Robin Gosens innan teigs. VAR skoðaði atvikið og var niðurstaðan víti. Duvan Zapata minnkaði muninn úr vítinu en lengra komust heimamenn ekki.

Fiorentina fagnar 2-1 sigri og er með sex stig eftir fyrstu þrjá leikina en Atalanta er með fjögur stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner