James Rodriguez fékk tilboð frá liði Basaksehir í Tyrklandi á dögunum segir blaðamaðurinn Ahmet Bulut.
James virðist ekki vera inni í myndinni hjá Carlo Ancelotti, stjóra Everton, og fékk tækifæri á að færa sig annað.
Samkvæmt Bulut var það hins vegar ákvörðun James að vera um kyrrt á Goodison Park og ætlar hann að vinna sér inn sæti í liðinu.
„Það var möguleiki fyrir James að koma til Basaksehir," sagði Bulut í samtali við Fotomac.
„Forsetinn var búinn að samþykkja það en ég held að knattspyrnumaðurinn hafi aldrei verið viljugur."
„Hann hefði komið þangað á láni en hann samþykkti það ekki því hann hélt hann myndi fá tækifæri á Englandi."
Athugasemdir