Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 11. september 2021 16:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jóhann Helgi: Mér leið eins og ég væri 17 ára
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Algjörlega hundfúllt, mér fannst við ekki skilið að tapa þessum leik en það skiptir víst engu máli," sagði Jóhann Helgi Hannesson framherji Þórs eftir síðasta heimaleik hans á ferlinum fyrir Þór en hann leggur skóna á hilluna eftir tímabilið.

Lestu um leikinn: Þór 1 -  2 Selfoss

Honum leið eins og hann væri orðinn 17 ára aftur í aðdraganda þessa leiks.

„Tilfinningin er mjög skrítin, mér leið eins og ég væri 17 ára, var dauðstressaður fyrir þennan leik og mér leið nánast eins og ég væri að spila minn fyrsta leik, það var öðruvísi tilfinning heldur en venjulega."

Jóhann Helgi skoraði tvö mörk en bæði dæmd af. Honum fannst að bæði hefðu átt að standa.

„Þetta er eins og tímabilið hefur verið, þetta hefur verið stöngin út, nú endaði boltinn í netinu en einhvernvegin tókst dómarateyminu að taka mörkin af mér. Hann dæmir á hrindingu í fyrra markinu, það eru allir að hrinda öllum, af hverju að dæma á þetta en ekki víti, það er verið að hrinda þremur hjá okkur, svona eru bara öll horn. Ég var ekki rangur það er 100 p en svona er þetta."

Þór heimsækir Þrótt í síðustu umferðinni eftir viku. Það verður því síðasti leikur Jóhanns á ferlinum.

„Ég ætla að skora tvö lögleg þar, það er klárt," sagði Jóhann Helgi að lokum.
Athugasemdir
banner
banner