Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   lau 11. september 2021 18:02
Brynjar Óli Ágústsson
Jón Þór: Hvernig við náðum að tapa þessum leik er mér hulin ráðgáta.
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
„Frábær leikur hér í dag'' segir Jón Þór Hauksson, þjálfari Vestra eftir 2-1 tap gegn Fjölnir.

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 -  1 Vestri

„Tvö virkilega góð lið að spila, þannig það var alltaf vitað að þetta myndi vera hörku leikur. Við erum ótrúlega svekktir að hafa tapað þessum leik, mér finnst við svo sannarlega eiga það ekki skilið,''

„Við spiluðum vel, það var inn á síðasta þriðjung þar sem vantaði örlítið upp á síðustu sendinguna og gæðin í hreyfingunni,''

„En hvernig við náðum að tapa þessum leik er mér hulin ráðgáta því mér fannst við raun og vera allatíman miklu betri í þessum leik.''

Vestri voru aðeins með 4 leikmenn á varamannabekknum í þessum leik.

„Við erum bara í bullandi vandræðum. Við erum með lítin hóp fyrir og svo eru tveir leikmenn í banni í dag. Svo erum við með meiðsli fyrir þennan leik og það hefur bara áhrif á breiddina hjá okkur.''

„Hörku leikir eftir, við eigum Val strax á miðvikudaginn í bikarnum og svo eru tveir hörku leikir eftir í deildinni á mót ÍBV og Kórdrengjum. Við viljum klára þetta tímabil á fullri ferð''

Spurt var Jón Þór hvort hann haldi áfram með Vestra eftir þetta tímabil.

„Við munum bara taka stöðuna eftir tímabilið og skoða þetta þá, það er auðvitað margt sem þarf að skoða og ég hreinlega get ekki svarað því hvort ég hafi tök á því''

Hægt er að horfa á allt viðtalið fyrir ofan
Athugasemdir
banner
banner