Í kvöld fer fram stórleikur Breiðabliks og Vals í Pepsi Max-deild karla. Leikurinn hefst klukkan 20:00 á Kópavogsvelli.
Fótbolti.net ræddi við þjálfara liðanna á fimmtudag og kom þá í ljós að hjá Breiðabliki væru þeir Oliver Sigurjónsson og Elfar Freyr Helgason að glíma við meiðsli og hjá Val voru það þeir Christian Köhler og Magnus Egilsson.

Fréttaritari hefur sett upp líkleg byrjunarlið liðanna og má sjá þau hér að neðan.
Stærstu spurningarmerkin hjá Val eru kannski hverjir verða á köntunum í leiknum og þá hafa þeir Orri Sigurður og Johannes Vall svolítið verið að skipta með sér leikjum í vinstri bakverðinum.
Hjá Breiðabliki gæti Höskuldur Gunnlaugsson tekið stöðu Jasons Daða og Davíð Örn Atlason kæmi þá í hægri bakvörðinn.
Leikir dagsins:
Pepsi Max-deild karla
14:00 KA-Fylkir (Greifavöllurinn)
14:00 ÍA-Leiknir R. (Norðurálsvöllurinn)
14:00 Keflavík-KR (HS Orku völlurinn)
17:00 Víkingur R.-HK (Víkingsvöllur)
20:00 Breiðablik-Valur (Kópavogsvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir