Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 11. september 2021 13:50
Victor Pálsson
Móðir Rondon hágrét á gluggadegi
Mynd: Getty Images
Móðir Salomon Rondon hágrét fyrir félagaskipti leikmannsins til Everton á lokadegi félagaskiptagluggans í ágúst.

Rondon gekk í raðir Everton frá Dalian Professional í Kína þar sem hann vann áður með Rafael Benitez sem er í dag stjóri einmitt Everton.

Rondon þekkir það vel að spila á Englandi en hann vann einnig með Benitez hjá Newcastle og spilaði þá fyrir West Brom.

Móðir Rondon var gríðarlega stressuð á gluggadeginum og hafði virðist vera miklar áhyggjur af syninum.

„Ég hringdi í mömmu og stressið fylgdi svo sannarlega þessum félagaskiptum. Þegar ég sagði frá tækifærinu að snúa aftur í úrvalsdeildina þá hágrét hún," sagði Rondon.

„Ég sagðist vera á leið í úrvalsdeildina og að hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur. Það eru engin orð sem geta lýst því þegar þú sérð móður þína gráta."

„Við erum öll mjög ánægð í dag, krakkarnir og eiginkonan líka því þau elska England."
Athugasemdir
banner
banner