Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. september 2021 10:00
Victor Pálsson
Pogba hrósar nýjasta landsliðsmanni Frakka í hástert
Mynd: EPA
Paul Pogba, landsliðsmaður Frakka, hrósaði ungstirninu Aurelien Tchouameni í hástert eftir landsleiki Frakklands í þessari landsleikjahrinu.

Tchouameni er talinn gríðarlegt efni og spilaði fyrstu þrjá landsleiki sína í þessu verkefni. Hann er samningsbundinn Mónakó í frönsku deildinni.

Þessi 21 árs gamli leikmaður var lykilmaður hjá Mónakó á síðustu leiktíð og spilaði 42 leiki í öllum keppnum.

Stórlið í Evrópu eru að horfa til stráksins sem var áður á mála hjá Bordeaux.

„Hann er mjög, mjög góður. Hann er ekki strákur, hann er maður," sagði Pogba við Ouest-France.

„Það var ánægjulegt að fá að spila með honum, hann er mjög orkumikill. Hann er orkumikill og framúrskarandi þegar kemur að tækni og líkamlegri getu."

„Ég vona að við getum spilað marga leiki saman og að ég sé alltaf við hans hlið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner