Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. september 2021 06:00
Victor Pálsson
Pulisic meiddist með Bandaríkjunum - Missir af þremur leikjum
Mynd: EPA
Christian Pulisic, leikmaður Chelsea, missir af næstu þremur leikjum enska liðsins.

Pulisic er nýbúinn að jafna sig eftir að hafa smitast af COVID og lék í 62 mínútur gegn Hondúras á miðvikudag.

Gregg Berhalter, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, staðfesti meiðsli Pulisic eftir leik en hann haltraði af velli í seinni hálfleik.

Pulisic er að glíma við hnémeiðsli og verður ekki klár í næstu þrjú verkefni.

Næsti leikur Chelsea er gegn Aston Villa í dag og svo Zenit í Meistaradeildinni á þriðjudag.
Athugasemdir
banner
banner