Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. september 2021 15:04
Victor Pálsson
Sjáðu markið: Ronaldo búinn að opna markareikninginn í annað sinn
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er búinn að opna markareikninginn fyrir Manchester United í annað skiptið.

Ronaldo samdi við Man Utd á lokadegi félagaskiptagluggans og kom til félagsins frá Juventus.

Síðast spilaði Ronaldo fyrir Man Utd fyrir 12 árum síðan en þá gekk hann í raðir Real Madrid.

Ronaldo var réttur maður á réttum stað gegn Newcastle í dag og skoraði af stuttu færi eftir skot Mason Greenwood.

Markið kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks og er staðan 1-0 fyrir þeim rauðklæddu í hálfleik.

Þetta er fyrsti leikur Ronaldo fyrir félagið síðan hann kom í sumar.


Athugasemdir
banner
banner