Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. september 2021 07:00
Victor Pálsson
Upamecano hjálpaði að sannfæra Sabitzer
Mynd: Getty Images
Dayot Upamecano hjálpaði Bayern Munchen að næla í bakvörðinn Marcel Sabitzer í sumarglugganum.

Sabitzer greinir sjálfur frá þessu en hann gekk í raðir Bayern eftir frábæran tíma hjá RB Salzburg í Austurríki.

Upamecano er sjálfur genginn í raðir Bayern frá RB Leipzig sem er systurfélag Salzburg og eru mikil tengsl þar á milli.

Upamecano heyrði fljótt af sögusögnum um að Sabitzer gæti verið á leið til Bayern og reyndi sitt í að hjálpa við ákvarðanatöku.

„Ég náði vel saman við Dayot og átti í góðu sambandi við þjálfarateymið hjá Leipzig. Þess vegna er ég ánægður að geta haldið áfram hér," sagði Sabitzer.

„Þegar sögusagnirnar byrjuðu þá sendi Dayot mér alltaf nokkur skjáskot og sagði mér að koma hingað og að mér myndi líða vel. Svo ræddum við málin fram og til baka."
Athugasemdir
banner
banner