Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 11. september 2021 09:00
Victor Pálsson
Zielinski ætti að ná stórleiknum
Mynd: Getty Images
Það er útlit fyrir að miðjumaðurinn Piotr Zielinski nái stórleik helgarinnar gegn Juventus í ítölsku deildinni.

Zielinski er á mála hjá Napoli en hann hefur aðeins spilað 35 mínútur á tímabilinu eftir að hafa meiðst gegn Venezia.

Sky Sports greinir nú frá því að Napoli búist við Zielinski til baka sem og sóknarmanninum Victor Osimhen sem var í banni.

Zielinski er mikilvægur hlekkur í liði Napoli sem hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni.

Juventus hefur á sama tíma aðeins náð í eitt stig úr tveimur leikjum.

Athugasemdir
banner
banner