Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 11. september 2022 19:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Firmino: Carvalho er stjarna
Carvalho og Firmino fagna markinu gegn Newcastle
Carvalho og Firmino fagna markinu gegn Newcastle
Mynd: EPA

Portúgalinn Fabio Carvalho hefur komið vel inn í lið Liverpool eftir að hann kom til félagsins frá Fulham í sumar.


Carvalho tryggði Liverpool stigin þrjú í síðustu umferð þegar liðið lenti í kröppum dansi gegn Newcastle. Markið hans kom þegar tvær mínútur voru komnar framyfir uppgefinn uppbótartíma.

Roberto Firmino leikmaður Liverpool er mjög ánægður með að fá landa sinn til félagsins.

„Hann er frábær leikmaður. Ég viðurkenni það að ég horfði á nokkra leiki með honum áður en hann kom til Liveprool svo ég var nú þegar hrifinn af honum. Hann er stjarna, hann er frábær leikmaður og nú er hann góður vinur minn," sagði Firmino.

„Við erum ánægðir að fá hann til Liverpool og ég veit að hann mun hjálpa okkur mikið, með stoðsendingum og með karakter á vellinum."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner