Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. október 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Courtois segist ekki glíma við kvíða
Thibaut Courtois.
Thibaut Courtois.
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, hefur blásið á fréttir þess efnis að hann sé að glíma við kvíða. Belginn er mjög reiður yfir þeim fréttaflutningi og segir hann vera vanvirðingu við þá sem eru raunverulega að glíma við kvíða.

Courtois var tekinn af velli í hálfleik í 2-2 jafntefli Real Madrid og Club Brugge í Meistaradeildinni á dögunum og í kjölfarið var fjallað um að hann sé að glíma við kvíða.

„Ég veit hvað það þýðir að vera leikmaður í fremstu röð. Ég er mjög ánægður og ég á ekki í vandræðum með kvíða," sagði Courtois.

„Fjölmiðlar þurfa að sýna ábyrgð og þeir eiga ekki að birta lygi og kjaftæði eins og þetta því það er fólk sem á virkilega við svona vandamál að stríða."

„Ég tel að svona fréttaflutningur sé vanvirðing við mig sem leikmann sem og við fólkið sem er virkilega að þjást."

Athugasemdir
banner
banner