Það styttist óðum í stórleik Íslands og Frakklands í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli.
Leikurinn hefst 18:45 að íslenskum tíma og má nálgast textalýsinguna hérna.
Leikurinn hefst 18:45 að íslenskum tíma og má nálgast textalýsinguna hérna.
Bæði lið eru mætt á Laugardalsvöll, en núna áðan hittust landsliðsþjálfararnir úti á velli. Erik Hamren var hinn hressasti og heilsaði upp á kollega sinn, þjálfara heimsmeistaranna, Didier Deschamps.
Það fór vel með þeim eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni.
Hvor þeirra fer ánægðari úr Laugardalnum í kvöld?
Athugasemdir