Enska landsliðið mætir Belgíu í Þjóðadeildinni klukkan 16:00 í dag en leikurinn fer fram á Wembley. Dominic Calvert-Lewin er í byrjunarliði Englands.
Calvert-Lewin hefur verið frábær fyrir framan markið á þessu ári með Everton og hefur það skilað sér í landsliðið en hann skoraði í fyrsta leik sínum í 3-0 sigri á Wales í vináttulandsleik á dögunum.
Hann fær sæti í byrjunarliðinu í dag en Jordan Henderson, miðjumaður Liverpool, er einnig í liðinu.
England vann Ísland naumlega 1-0 í fyrsta leik riðilsins en gerði svo markalaust jafntefli við Dani. Belgía hefur á meðan unnið báða leiki sína í riðlinum.
Byrjunarlið Englands: Pickford, Walker, Maguire, Dier, Alexander-Arnold, Rice, Henderson, Trippier, Mount, Rashford, Calvert-Lewin
Athugasemdir