Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 11. nóvember 2017 07:30
Elvar Geir Magnússon
Coutinho biður Liverpool um að hafna tilboðum frá PSG
Coutinho á æfingu með Liverpool.
Coutinho á æfingu með Liverpool.
Mynd: Getty Images
Spænskir fjölmiðar segja að Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho muni biðja Liverpool um að hafna öllum tilboðum sem berast frá Paris Saint-Germain.

Coutinho bindur vonir við að fá draumafélagaskiptin til Barcelona. Spænska stórliðið reyndi að kaupa hann í sumar en án árangurs.

Sagt er að Börsungar séu tilbúnir að gera 106 milljóna punda tilboð í komandi janúarglugga.

Þá ku PSG vera að undirbúa tilboð í þennan hæfileikaríka 25 ára leikmann.

Coutinho vill víst ekki að PSG trufli viðræður Liverpool við Barcelona.

Stöðugar vangaveltur um framtíð leikmannsins hafa ekki truflað frammistöðu hans inni á vellinum. Hann hefur skorað fjögur mörk og skapað þrjú til viðbótar í níu leikjum fyrir Liverpool á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner