Denmark 0 - 0 Ireland
Leik Danmerkur og Írlands í umspili um sæti á HM í Rússlandi var að ljúka rétt í þessu. Um var að ræða fyrri viðureign liðanna en fór hún fram á Parken í Kaupmannahöfn.
Leik Danmerkur og Írlands í umspili um sæti á HM í Rússlandi var að ljúka rétt í þessu. Um var að ræða fyrri viðureign liðanna en fór hún fram á Parken í Kaupmannahöfn.
Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og endaði með markalausu jafntefli. Heimamenn voru sterkari aðilinn í leiknum en náðu ekki að koma inn marki.
Síðari viðureign liðanna fer fram í Írlandi næstkomandi þriðjudag en þá kemur í ljós hvort liðið mun spila á HM í Rússlandi næstkomandi sumar.
Athugasemdir