Guðni Bergsson, formaður KSÍ, og Ríkharður Daðason, meðlimur landsliðsnefndar, eru staddir með íslenska landsliðinu í Katar.
Báðir eru þeir gamlar landsliðsstjörnur, Guðni lék 80 landsleiki á árunum 1984-2003 og Ríkharður Daðason lék 44 landsleiki og skoraði 14 mörk á árunum 1991-2003.
Báðir eru þeir gamlar landsliðsstjörnur, Guðni lék 80 landsleiki á árunum 1984-2003 og Ríkharður Daðason lék 44 landsleiki og skoraði 14 mörk á árunum 1991-2003.
Þeir fengu ekki að vera með á æfingu landsliðsins í morgun en dóu þó ekki ráðalausir.
Þeir fundu fínt pláss á æfingavellinum og sýndu gömul tilþrif þegar þeir spörkuðu knettinum á milli sín eins og þessar myndir Hafliða Breiðfjörð sýna.
Athugasemdir