David og Bernardo Silva voru bestir er Manchester City lagði Manchester United að velli á Etihad í dag.
Bernardo lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir David og lagði svo einnig síðasta markið upp fyrir Ilkay Gündogan.
Þeir fá báðir 8 í einkunn hjá Sky Sports og eru sex samherjar þeirra sem fá 7 í einkunn.
Enginn í liði Rauðu djöflanna fær yfir 6 og eru tveir leikmenn sem fá aðeins 4 í einkunn.
Þeir eru Nemanja Matic, sem gleymdi Gündogan í þriðja marki heimamanna, og Marcus Rashford, sem fann sig aldrei í leiknum.
City er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með tveggja stiga forystu eftir sigurinn en United situr eftir í áttunda sæti, fjórum stigum frá Arsenal í Evrópudeildarsæti.
Man City: Ederson (6), Walker (6), Stones (7), Laporte (7), Mendy (6), Fernandinho (7), Mahrez (7), D. Silva (8), Bernardo (8), Sterling (6), Aguero (7).
Varamenn: Gundogan (7), Sane (7)
Man Utd: De Gea (5), Young (6), Smalling (5), Lindelof (6), Shaw (6), Matic (4), Herrera (5), Fellaini (6), Lingard (5), Martial (6), Rashford (4).
Varamenn: Lukaku (6), Mata (5), Sanchez (5)
Athugasemdir