Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 11. nóvember 2018 13:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Liverpool á toppinn eftir sigur á Fulham
Salah að koma Liverpool 1-0 yfir.
Salah að koma Liverpool 1-0 yfir.
Mynd: Getty Images
Shaqiri gerði annað markið.
Shaqiri gerði annað markið.
Mynd: Getty Images
Liverpool 2 - 0 Fulham
1-0 Mohamed Salah ('41 )
2-0 Xherdan Shaqiri ('53 )

Liverpool er komið á toppinn í ensku úrvalsdeildinni eftir sigur á Fulham á Anfield í dag.

Skrautlegar 14 sekúndur
Liverpool var mikið meira boltann í fyrri hálfleik og sköpuðu sér nokkur færi en gestirnir voru hættulegir þegar þeir sóttu að marki Liverpool.

Á 40. mínútu skoraði Fulham. Aleksandar Mitrovic skallaði boltann í markið en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það var afar tæpt en Andrew Robertson virðist mögulega hafa spilað Mitrovic réttstæðan.


Liverpool brunaði í sókn eftir að dómarinn hafði dæmt markið af og skoraði. Mohamed Salah var snöggur og kláraði færið vel en mark Liverpool var að því virðist ólöglegt þar sem Alisson, markvörður Liverpool, virðist hafa spilað boltanum þegar hann var á ferð. Það er ólöglegt og því hefði átt að taka spyrnuna aftur.

Það voru 14 sekúndur á milli rangstöðumarksins hjá Fulham og marksins hjá Liverpool.

Smelltu hér til að sjá markið.

Fulham gerði lítið í síðari hálfleik
Liverpool komst í 2-0 í upphafi síðari hálfleiks þegar Xherdan Shaqiri skoraði laglegt mark. Það fór alveg með leikmenn Fulham, sem höfðu verið sprækir í fyrri hálfleik.

Fulham gerði lítið sem ekkert til að vinna sig inn í leikinn og sigur Liverpool staðreynd.

Hvað þýða þessi úrslit?
Liverpool er komið á toppinn í bili. Manchester City getur endurheimt toppsætið á eftir með sigri eða jafntefli gegn Manchester United. Sá leikur er klukkan 16:30.

Fulham er áfram á botni deildarinnar með fimm stig.

Klukkan 14:15 er að hefjast leikur Chelsea og Everton. Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin. Liverpool missir líka toppsætið ef Chelsea vinnur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner