sun 11. nóvember 2018 15:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jorginho með ljóta tæklingu á Gylfa - Vildu rautt spjald
Mynd: Getty Images
Ítalski miðjumaðurinn Jorginho fékk að líta gula spjaldið fyrir tæklingu á Gylfa Þór Sigurðssyni í fyrri hálfleik Chelsea og Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Tæklingin var ljót, Jorginho fór aftan í Gylfa með báðum fótum. Ljóst var á viðbrögðum Gylfa að sársaukinn var einhver. Gylfi þurfti að fara út af til að fá aðhlynningu en hann hélt leik áfram.

Jorginho fékk að líta gula spjaldið fyrir tæklinguna en stuðningsmenn Everton vildu fá að sjá annan lit á spjaldinu.

Verðskuldaði tæklingin rautt spjald?

Myndband af henni má sjá með því að smella hér



















Athugasemdir
banner
banner