Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. nóvember 2018 15:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Markið gegn Arsenal var skýrara
Mynd: Getty Images
„Þetta var stundum erfitt, og stundum ekki," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 2-0 sigur á heimavelli gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Liðsuppstilling þeirra kom okkur á óvart. Þeir voru með fjóra eða fimm miðverði inn á. Þá var alveg ljóst hvernig þeir myndu spila."

„Ég er fullkomlega ánægður fyrir utan það að við hefðum getað skorað fleiri mörk."

Klopp var spurður út í það sem átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks. Aleksandar Mitrovic, sóknarmaður Fulham, skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Liverpool brunaði í sókn og skoraði. Það var mjög tæpt um hvort rangstöðu hafi verið að ræða eða ekki.

„Hvað get ég sagt? Ég er búinn að sjá þetta einu sinni, ég er ekki viss."

„Gegn Arsenal skoruðum við mark sem átti ekki að vera dæmt af, það var skýrara. Þú getur ekki breytt þessu, við brugðumst frábærlega við."
Athugasemdir
banner
banner
banner