Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 11. nóvember 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeild kvenna - Wolfsburg mætir Lyon
8-liða úrslitin
Sara Björk er lykilmaður hjá Wolfsburg.
Sara Björk er lykilmaður hjá Wolfsburg.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það var dregið í 8-liða úrslit Meistaradeildar kvenna síðastliðinn föstudag.

Það er eitt Íslendingalið eftir í keppninni; Wolfsburg. Sara Björk Gunnarsdóttir spilar með Wolfsburg en liðið fór alla leið í úrslitaleikinn á síðustu leiktíð. Þar tapaði Wolfsburg gegn Lyon.

Wolfsburg mætir einmitt Lyon í 8-liða úrslitunum núna. Það ætti að verða frábært einvígi.

Slavia Prag mætir Bayern München, Chelsea og PSG eigast við og Barcelona og Lilleström mætast. Sigríður Lára Garðarsdóttir er farin frá Lilleström.

Leikirnir fara fram 19. og 26 mars á næsta ári.

Ef Sara Björk og stöllur vinna Lyon þá verður næsti mótherji annað hvort Chelsea eða PSG.

8-liða úrslitin
Slavia Prag - Bayern München
Barcelona - Lilleström
Lyon - Wolfsburg
Chelsea - PSG
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner