Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. nóvember 2018 12:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Fyndið mark í Ísrael - Línupotari
Habib Habibou.
Habib Habibou.
Mynd: Getty Images
Habib Habibou er 31 árs gamall sóknarmaður sem leikur með Maccabi Petah Tikva í Ísrael.

Habibou skoraði í gær sigurmarkið fyrir sitt lið gegn Maccabi Netanya í ísraelsku úrvalsdeildinni.

Markið var afar athyglisvert. Habibou hætti að spila til þess að aðstoða liðsfélaga sinn sem lá eftir meiddur. Leikurinn var ekki stöðvaður og sótti Petah Tikva að marki Netanya.

Það fór þannig að boltinn fór fyrir markið þar sem Habibou var með liðsfélaga sínum. Hann hætti að aðstoða liðsfélaga sinn og setti boltann í markið. Réttur maður á réttum stað, en ef Habibou væri á skólavellinum þá væri þarna talað um línupot.

Þetta var sigurmark í 1-0 sigri.

Hér að neðan má sjá myndband af markinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner