Roberto Carlos, einn besti vinstri bakvörður sem uppi hefur verið, er gríðarlega hrifinn af landa sínum, Vincius Junior.
Vinicius er 18 ára, fæddur árið 2000, og er á mála hjá Real Madrid. Hann kom til Real Madrid frá Flamengo. Real keypti hann í maí 2017 fyrir 46 milljónir evra en hann gekk formlega í raðir liðsins í júlímánuði á þessu ári.
Hann er byrjaður að spila með aðalliðinu og hefur hingað til komið við sögu í fimm leikjum og skorað eitt mark.
Roberto Carlos er fyrrum leikmaður Real Madrid og vinnur í dag sem sendiherra hjá félaginu. Hann telur að Vinicius muni skrá nafn sitt í sögubækurnar á næstu árum.
„Vinicus er mjög ungur en hann fór frá Flamengo með mikla reynslu. Það var frábært fyrir hann að spila gegn Plzen (í Meistaradeildinni). Hann mun skrá sig í sögubækurnar hjá Real Madrid og í heimsfótboltanum. Hann er nútímaleikmaður," sagði Roberto Carlos við Marca.
Real Madrid heimsækir Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Vincius gæti fengið tækifæri þar.
Athugasemdir