Ari Leifsson og Valdimar Þór Ingimundarson verða með U21 landsliðinu í leiknum mikilvæga gegn Ítalíu á morgun.
Ari og Valdimar eru á mála hjá Stromsgödset í Noregi en ungur leikmaður liðsins greindist með kórónuveiruna á sunnudaginn.
Ari og Valdimar eru á mála hjá Stromsgödset í Noregi en ungur leikmaður liðsins greindist með kórónuveiruna á sunnudaginn.
Leikmaðurinn æfði með Ara og Valdimar í síðustu viku og þeim var haldið frá öðrum leikmönnum U21 liðsins við komuna til landsins.
Eftir að hafa fengið neikvæða niðurstöðu úr skimun í gær þá er ljóst að leikmennirnir verða með í leiknum mikilvæga á morgun.
Ari og Valdimar æfðu með U21 liðinu á Víkingsvelli í dag en leikurinn gegn Ítalíu fer fram þar klukkan 13:15 á morgun.
Ísland og Ítalía eru bæði að berjast um sæti á EM á næsta ári. Efsta liðið fer beint á EM en liðið í 2. sæti fer í umspil.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir