Erkifjendurnir í Liverpool og Manchester United mætast á Anfield á sunnudaginn.
Af því tilefni fékk Sky Sports sérfræðingana Gary Neville og Jamie Carragher til að velja sameiginleg byrjunarlið úr leikmannahópum liðanna.
Af því tilefni fékk Sky Sports sérfræðingana Gary Neville og Jamie Carragher til að velja sameiginleg byrjunarlið úr leikmannahópum liðanna.
Bæði Neville og Carragher tóku þátt í mörgum leikjum á milli þessara félaga á sínum tíma.
Sjö leikmenn eru í báðum liðunum en það eru David De Gea og Liverpool leikmennirnir Trent Alexander-Arnold, Virgil van Dijk, Andy Robertson, Naby Keita, Mohamed Salah og Roberto Firmino.
Neville er með fjóra leikmenn frá Manchester United í sínu liði en Carragher einungis með tvo.
Hér að neðan má sjá liðin hjá þeim félögum. Hvort liðið er betra?
Athugasemdir