þri 11. desember 2018 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Helena Ósk framlengir við FH
Helena Ósk Hálfdánardóttir í leik með FH
Helena Ósk Hálfdánardóttir í leik með FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Helena Ósk Hálfdánardóttir skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við FH.

Helena er fædd árið 2001 og á 38 leiki að baki og 4 mörk í efstu deild kvenna.

Hún hefur leikið glimrandi vel með yngri landsliðum Íslands og hefur spilað stóra rullu í FH-liðinu.

Hún gerði nýjan tveggja ára samning við FH í gær og leikur því með liðinu í Inkasso-deildinni næsta sumar.


Hún á 14 landsleiki að baki með U17 og U19 ára landsliðum Íslands og gert 2 mörk í þeim.
Athugasemdir
banner
banner