Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. desember 2018 13:24
Elvar Geir Magnússon
Messi keypti einkaþotu með eldhúsi - Sjáðu inn í hana
Þotan er með 10 á stélinu.
Þotan er með 10 á stélinu.
Mynd: Golders/Twitter
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, hefur keypt sér nýja einkaþotu svo hann geti ásamt fjölskyldu og vinum ferðast í bestu mögulegu þægindum.

Þotan er merkt með númerinu 10, sem er númer Messi.

Þá eru nöfn eiginkonu hans ásamt börnum hans þremur skrifuð í tröppurnar.

Í flugvélinni er eldhús, tvö klósett og sextán sæti sem hægt er að breyta í átta rúm.

Þrátt fyrir að hafa misst af Ballon d'Or nýlega þá er Messi á flugi með Börsungum og skoraði tvö aukaspyrnumörk í 4-0 sigri gegn grönnunum í Espanyol um síðustu helgi.
Athugasemdir
banner
banner