Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 11. desember 2018 16:55
Elvar Geir Magnússon
Pogba furðu lostinn vegna ákvarðana Mourinho
Mynd: Getty Images
Paul Pogba er furðu lostinn vegna ákvarðana Jose Mourinho sem hefur skilið franska heimsmeistarann eftir utan byrjunarliðsins í tveimur síðustu leikjum, gegn Arsenal og Fulham.

Mikið hefur verið fjallað um samband þeirra tveggja en Guardian segir að Pogba skilji ekki í ákvörðunum portúgalska stjórans.

Sagt er að Mourinho hafi látið Pogba heyra það í klefanum í upphafi mánaðarins.

Mourinho hefur sagt að Pogba muni byrja gegn Valencia á morgun en United er þegar öruggt með sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner