Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. desember 2018 14:00
Magnús Már Einarsson
Sarri var brjálaður í klefanum eftir tapið gegn Wolves
Getur látið í sér heyra.
Getur látið í sér heyra.
Mynd: Getty Images
Antonio Rudiger, varnarmaður Chelsea, hefur greint frá því að Maurizo Sarri hafi brjálast í klefanum eftir 2-1 tap liðsins gegn Wolves í síðustu viku.

Chelsea missti niður 1-0 forsytu í þeim leik en leikmenn liðsins komu sterkir til baka á laugardaginn þegar þeir unnu Manchester City 2-0 á heimavelli.

„Eftir Wolves leikinn var hann ógnvænlegur," sagði Rudiger.

„Hann var brjálaður. Það var allt í lagi því við hefðum ekki átt að tapa þeim leik."

„Daginn eftir var hann mjög rólegur og skýr. Hann ræddi við okkur og sagði okkur að hafa trú á sjálfum okkur. Hann vildi að við myndum sækja til sigurs gegn City."
Athugasemdir
banner
banner
banner