Liverpool tryggði sér farseðilinn í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar með 1-0 sigri á Napoli á Anfield í kvöld. Liverpool þurfti að vinna, annað hvort 1-0 eða með tveggja marka mun og þeim tókst að gera það fyrrnefnda.
Eina mark leiksins skoraði Mohamed Salah á 34. mínútu leiksins. Hann fór illa með Kalidou Koulibaly, varnarmann Napoli, og kláraði fram hjá Ospina í markinu.
Það er klárlega hægt að setja spurningamerki við Ospina í marki Napoli. Hefði hann ekki átt að gera betur?
Smelltu hér til að sjá markið hjá hinum sjóðheita Salah.
Gríðarlega mikilvægt mark sem sér til þess að Liverpool verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit.
Er ennþá að klóra mér í höfðinu yfir þessari ákvörðun hjá Ospina í markinu hans Salah! 🤯⚽️ pic.twitter.com/8Cjup8u3dT
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) December 11, 2018
Athugasemdir