Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 11. desember 2018 21:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verðskuldaði tækling Van Dijk rautt spjald?
Liverpool áfram eins og staðan er núna
Mynd: Getty Images
Eins og staðan er núna er Liverpool á leiðinni áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Liverpool er 1-0 yfir gegn Napoli þegar búið er að flauta til hálfleiks. Mohamed Salah er heldur betur dottinn í stuð en hann skoraði eina mark fyrri hálfleiksins.

Staðan er því þannig núna að Liverpool er að fara áfram en 1-0 sigur dugir. Ef Napoli skorar þarf Liverpool að vinna með tveggja marka mun til að fara áfram.

Í fyrri hálfleiknum á Anfield vakti tækling frá Virgil van Dijk mikla athygli. Hann náði boltanum fyrst en fór afar illa í Dries Mertens sem lá sárþjáður eftir. Van Dijk fékk gult spjald fyrir vikið.

Í Meistaradeildarmessunni var rætt um það að Van Dijk hefði verið heppinn að liturinn á spjaldinu hafi verið gulur. Verðskuldaði tæklingin rautt spjald?

Ef Liverpool kemst áfram þá verður Van Dijk í banni í fyrri leik 16-liða úrslitanna.

Smelltu hér til að sjá myndband af tæklingunni. Smelltu hér til að sjá mynd.
Athugasemdir
banner
banner
banner