fös 12. janúar 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Conte reiknar með að Barkley spili sinn fyrsta leik gegn Norwich
Barkley er kominn til Chelsea en hefur ekkert spilað enn.
Barkley er kominn til Chelsea en hefur ekkert spilað enn.
Mynd: Chelsea
Ross Barkley sem gekk til liðs við Chelsea fyrr í þessum mánuði hefur enn ekki leikið fyrir félagið.

Antonio Conte reiknar þó með að hann verði klár í seinni leik Chelsea og Norwich í FA bikarnum sem fer fram á Brúnni í næstu viku.

„Hann leggur mikið á sig til að komast í gott stand og ég reikna með því að hann verði klár í leikinn gegn Norwich."

„Ég vona það allavega að hann verði klár, hann er ekki 100 prósent tilbúinn. En ég vona að hann verði það gegn Norwich og muni svo eftir það vera tilbúinn í að hjálpa okkur það sem eftir er af tímabilinu," sagði Conte.

Chelsea fær Leicester City í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Athugasemdir
banner
banner