Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 12. janúar 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Ighalo aftur í enska boltann?
Ighalo fagnar marki með Watford.
Ighalo fagnar marki með Watford.
Mynd: Getty Images
Nígeríski framherjinn Odion Ighalo hefur áhuga á að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.

Ighalo skoraði 16 mörk í 55 leikjum með Watford áður en kínverska félagið Changchu Yatai keypti hann á 20 milljónir punda í fyrra.

Hinn 28 ára gamli Ighalo hefur nú hug á að snúa aftur til Englands.

Samkvæmt frétt Sky hafa tvö félög í ensku úrvalsdeildinni nú þegar sýnt honum áhuga og möguleiki er á að Ighalo snúi aftur til Englands í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner