Sex leikir eru á dagskrá í ítalska boltanum í dag en Roma og Juventus mætast í einum af stórleik helgarinnar í Róm.
Ítalski klúbburinn Genoa spilar við Hellas Verona klukkan 17:00 en það þykir líklegt að Birkir Bjarnason klári félagaskipti sína til Genoa á allra næstu dögum.
Stærsti leikur dagsins er leikur Roma og Juventus. Gestirnir í Juventus ætla sér aftur á toppinn á meðan Roma getur komið sér upp í 4. sætið eftir að Inter og Atalanta skildu jöfn í gær. Roma er í 5. sæti sem stendur með 35 stig, jafnmörg og Atalanta.
Leikir dagsins:
11:30 Udinese - Sassuolo
14:00 Fiorentina - Spal
14:00 Torino - Bologna
14:00 Sampdoria - Brescia
17:00 Verona - Genoa
19:45 Roma - Juventus
Athugasemdir