Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 12. janúar 2023 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Staðfestir áhuga Aston Villa á Deulofeu
Mynd: EPA
Aston Villa er áhugasamt um að fá spænska vængmanninn Gerard Deulofeu frá Udinese en þetta staðfestir umboðsmaður leikmannsins í samtali við Il Messaggero Veneto.

Spánverjinn er með 3 mörk og 7 stoðsendingar í 17 leikjum í Seríu A á þessu tímabili en samningur hans við Udinese gildir út næsta ár.

Deulofeu, sem er 28 ára gamall, er að vekja áhuga fjölda liða um alla Evrópu en Aston Villa er eitt þeirra.

Leikmaðurinn þekkir ensku úrvalsdeildina vel eftir að hafa spilað fyrir bæði Everton og Watford, en hann skoraði 20 mörk í 127 leikjum frá 2013 til 2021.

Umboðsmaður Deulofeu staðfesti áhuga Aston Villa en vildi ekki tjá sig mikið meira um það. Leikmaðurinn er á meiðslalista Udinese sem stendur en það er þó búist við að hann verði klár þegar liðið mætir Bologna á sunnudag.
Athugasemdir
banner