Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 12. janúar 2023 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þurfa að reyna að ná í góð úrslit án síns besta leikmanns
Aleksandar Mitrovic.
Aleksandar Mitrovic.
Mynd: Getty Images
Það er einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Fulham, sem hefur komið mjög á óvart, mun mæta Chelsea.

Chelsea hefur ekki verið að gera neitt frábærlega upp á síðkastið og er farin að myndast ákveðin pressa á stjóranum Graham Potter.

Fulham þarf að reyna að ná í góð úrslit í kvöld án síns besta leikmanns því Aleksandar Mitrovic - sóknarmaðurinn sterki - verður fjarri góðu gamni.

Mitrovic fékk sitt fimmta gula spjald í deildinni á þessari leiktíð í síðasta leik gegn Leicester og er því í leikbanni í dag.

Mitrovic hefur verið stórgóður fyrir lið Fulham á þessari leiktíð og er á meðal markahæstu leikmanna deildarinnar með ellefu mörk.

Fyrir leikinn í kvöld er Fulham í sjöunda sæti og Chelsea í því tíunda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner