Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. febrúar 2019 14:44
Magnús Már Einarsson
53 brosandi andlit Solskjær á forsíðu VG
Brosmildur.
Brosmildur.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, þykir brosmildur með eindæmum og hann hefur svo sannarlega haft ástæðu til að brosa síðan hann tók við sem stjóri United í desember.

Manchester United hefur síðan þá unnið tíu af ellefu leikjum sínum og Solskjær þykir nú líklegur til að vera ráðinn stjóri til frambúðar.

Í dag er 54. dagur Solskjær við stjórnvölinn og framundan er stórleikur gegn PSG í Meistaradeildinni í kvöld.

Verdens Gang í Noregi birti 53 myndir af brosandi Solskjær á forsíðu sinni í dag og varpar upp spurningunni hvort hann verði einnig brosandi eftir daginn í dag?

Hér má sjá forsíðuna.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner