Það hefur afar fátt gengið upp hjá Real Madrid á leiktíðinni en brotthvarf Cristiano Ronaldo frá félaginu síðasta sumar er að hafa mun meiri áhrif á liðið en eflaust einhverjir gerðu ráð fyrir.
Brasilíski miðvörðurinn Marcelo hefur oft leikið stærra hlutverk með liðinu en á þessari leiktíð.
Leikmaðurinn hefur einungis spilað tólf leiki af 23 deildarleikjum sem búnir eru.
Ekki er ólíklegt að einhver tiltekt eigi sér stað hjá Real í sumar og segir Marcelo að félagið gæti allt eins látið hann fara.
„Ef að ég er á þessum lista yfir leikmenn sem að félagið vill losa sig við þá borga þeir upp samninginn minn og ég fer," sagði sá brasilíski.
„Ég trú og treysti á sjálfan mig. Ef að sá dagur rennur upp að Real við losna við mig þá verð ég leiður en ég verð að virða það. Ég mun ekki fara í illu við félagið."
Real Madrid heimsækir Ajax í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.
Athugasemdir