þri 12. febrúar 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Margir minnast Gordon Banks
Gordon Banks.
Gordon Banks.
Mynd: Getty Images
Gordon Banks, fyrrum markvörður enska landsliðsins, lést í dag 81 árs að aldri eftir baráttu við krabbamein.

Banks var markvörður enska landsliðsins sem vann HM 1966 og þá átti hann mjög fræga markvörslu frá Pele á HM 1970.

Á löngum ferli sínum spilaði hann yfir 600 leiki, flesta með Leicester og Stoke.

Landsliðsferill Banks var frá 1963 til 1972 en hann lék samtals 73 landsleiki fyrir England hönd.

Margir hafa skrifað minningarorð á Twitter í dag eftir fráfall Banks og hér má sjá brot af þeim.












Athugasemdir
banner
banner