Jamie Redknapp, knattspyrnusérfræðingur á Sky, segir að einungis Romelu Lukaku hafi ekki bætt sig undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Redknapp lét þessi ummæli um Lukaku falla eftir að honum mistókst að skora á móti Fulham á laugardag en Lukaku var í byrjunarliði Man Utd í leiknum.
„Eini leikmaðurinn sem virðist ekki vera á þessu flugi er Lukaku, maður sér hann ekki bæta sig frá degi til dags eins og kannski aðra í liðinu. Hann hefur í raun ekki brugðist Solskjær af því að hann hefur fengið svo fá tækifæri," sagði Redknapp.
Hann segir að ástæðan gæti verið sú að Lukaku hafi verið meiddur þegar Solskjær tók við.
„Það breyttist bara eitthvað við komu Solskjær og það að Lukaku hafi ekki verið viðstaddur þegar hann kom gæti hafa breytt miklu. Vonandi fyrir hann kemur það með tímanum."
Athugasemdir