Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 12. febrúar 2020 07:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bent: Pogba er alltaf kennt um allt - Spyrjast City og Liverpool fyrir?
Mynd: Getty Images
Darren Bent, fyrrum framherji Tottenham, hefur stigið fram og vrið Paul Pogba hjá Manchester United. Bent finnst eins og Pogba sé gerður blóraböggull hjá United ef eitthvað er að.

„Stundum vorkennir maður honum, hann er gerður að blóraböggli í öllum málum Manchester United," sagði Bent við TalkSPORT.

„Jafnvel þegar hann er ekki að spila þá er honum kennt um og það er alltaf verið að ræða hann. Ég hugsa að það séu mörg félög sem spyrjast fyrir um hann ef Manchester United ætlar að selja hann."

„Það kæmi mér ekki á óvart ef lið eins og Manchester City yrði eitt af þeim sem myndi spyrjast fyrir um Pogba. Ég get einnig séð hann komast inn í liðið hjá Liverpool."

„Ef hann er í gírnum kemst hann í flest lið í heimi. Það má ekki efast um gæði hans. Það er galið þegar sumir segja hann meðalmann á vellinum. Pogba er toppfótbolta maður,"
bætti Bent við.
Athugasemdir
banner
banner
banner