Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 12. febrúar 2020 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óvíst hvar leikurinn um Samfélagsskjöldinn fer fram á næsta ári
EM kvenna á sama tíma
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið er að vinna í því að finna völl þar sem leikurinn um Samfélagsskjöldinn færi fram á næsta ári.

Ár hvert mætast sigurvegarar deildarkeppninnar á Englandi og bikarmeistararnir í leik um skjöldinn sem hét áður Góðgerðarskjöldurinn.

Yfirleitt fer leikurinn fram á Wembley en það verður ekki hægt á komandi ári þar sem England heldur EM kvenna og leikið verður þar á Wembley.

Síðast þegar ekki var leikið á Wembley var árið 2012 þegar Chelsea og Manchester City mættust á Villa Park. Það var vegna Ólympíuleikanna í London.

Manchester City vann skjöldinn síðasta haust eftir viðureign við Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner